Peak Ísland – íþróttaskór og íþróttavörur
Körfuboltaskór, hlaupaskór, inniskór ræktarskór, fótboltaskór eða annarskonar íþróttaskór – ef þú ert að leita að þessum vörum þá getum við ábyggilega aðstoðað. Peak er framsækið merki í íþróttavörum sem er að stíga sín fyrstu skref á íslenskum markaði en býr að rúmlega 20 ára sögu. Fyrirtækið selur ekki eingöngu íþróttaskó heldur líka ýmiskonar íþróttaföt og tengdan varning á borð við töskur, æfingafatnað, úlpur, sokka, svitabönd og fleira í þeim dúr.
Körfubolti er í öndvegi hjá Peak á alþjóðavísu og þess má sjá merki í vöruúrvalinu hjá Peak Ísland. Þannig bjóðum við fyrst um sinn mest úrval af körfuboltaskóm en sinnum að sjálfsögðu öllu öðru sem býðst eftir bestu getu og vonumst til að vöruúrvalið muni vaxa og aukast eftir því sem Peak merkið nær betri fótfestu á íslenskum markaði.
Hina ýmsu vöruflokka sem bjóðast í netverslun Peak má skoða með því að smella á nöfn vöru í listanum hér til hliðar; fótboltaskór, körfuboltaskór, hlaupaskór og svo framvegis.
Peak Ísland – íþróttaskór og íþróttavörur


Peak Ísland á netinu: