Peak íþróttavörur á Íslandi
Peak Ísland varð til haustið 2010 þegar tveir bræður og áhugamenn um íþróttir hófu að svipast um eftir möguleikum varðandi innflutning á íþróttaskóm og tengdum vörum. Þeim blöskraði eins og mörgum öðrum hið gríðarlega verðskrið sem varð á búnaði til íþróttaiðkunar í kjölfar hruns og eins hve úrval af sumum íþróttavörum var oft og tíðum takmarkað.
Þegar Peak International merkið kom til skjalanna þóttust menn fljótlega sjá að það þyrfti ekki að leita lengra.
Þarna var komin fjölbreytt vörulína sem telur körfuboltaskó, fótboltaskó, hlaupaskó og margt fleira, plús íþróttafatnað og búnað af ýmsu tagi.
Þá þótti líka traustvekjandi að Peak merkið státar af rúmlega 20 ára sögu og fyrirtækið er mjög virkt í gæðaeftirliti, hefur allar tilskyldar ISO vottanir og hefur skráð fjölda einkaleyfa sem tengjast vöruþróun þess.
Svo má að endingu geta þess að Peak merkið í mikilli sókn á heimsvísu, fer fram af miklum metnaði og er sífellt að þróa og bæta sínar vörur með kröfur og þarfir markaðarins í huga.
Framrás Peak á Íslandi fór varlega af stað á haustmánuðum 2010, körfuboltaskór urðu fyrir valinu sem einskonar prufa – bæði vildum við fá viðbrögð frá íþróttamönnum og eins sjá og handleika skóna og ganga úr skugga um að þeir stæðust gæðakröfur okkar og annarra.
Skemmst er frá því að segja að körfuboltaskórnir ollu engum vonbrigðum og nú í júlí 2011 tókum við upp fyrstu stóru sendinguna af Peak íþróttavörum. Við ætlum að sinna okkar kúnnum vel og hvetjum endursöluaðila sem og íþróttafélög og klúbba sem hafa áhuga á samstarfi vinsamlegast til að hafa samband við okkur.
Peak íþróttavörur á Íslandi




Peak Ísland á netinu: